Company logo

Valmynd

Aðventufundur mannauðslausna

2. des. 2026

08:45-10:00

Guðrúnartún 10

Mannauðslausnir Advania bjóða viðskiptavinum sínum til aðventumorgunverðarfundar þar sem við ætlum að eiga notalega morgunstund saman, líta yfir það sem er nýtt og fram undan og huga að undirbúningi fyrir áramótin.

Húsið opnar kl. 08:30 og boðið verður upp á kaffi og morgunverð ☕🥐

Fyrirlestrar hefjast kl. 08:45 og standa til 10:00.

 

Úlfhildur Ösp Indriðadóttir kynnir Teamtailor, ráðningarlausn sem er ný í lausnaflóru Mannauðslausna, og sýnir hvernig lausnin getur einfaldað ráðningarferlið og bætt upplifun umsækjenda og stjórnenda. 

 

Nína Birna Þórsdóttir, vörustjóri H3, fer yfir helstu nýjungar og þróun í H3 og stiklar á stóru yfir það sem gott er að hafa í huga þegar líður að áramótum, meðal annars varðandi undirbúning og launamiða. 

 

Að loknum erindum þeirra stígur Anna Steinsen hjá Kvan á svið og lýkur morgninum með léttri og uppbyggilegri hugvekju. 

 

Við hlökkum til að hitta ykkur, eiga gott spjall yfir morgunverði og njóta saman notalegrar stundar í aðdraganda jólanna. 

 

Fram koma

speaker mynd

Nína Birna Þórsdóttir

Ráðgjafi hjá mannauðslausnum Advania
speaker mynd

Anna Steinsen

Eigandi og þjálfari KVAN

Skráðu þig á viðburðinn

Loading...