Company logo

Valmynd

Akureyri - Tæknilausnir í takt við framtíðarvinnustaði

4. júní 2025

15:00-16:30

Austursíða 6, Akureyri

Mannauðslausnir Advania halda áfram að fjalla um framtíðarvinnustaði og mikilvægi þess að mannauðsfólk hafi lausnir í takt við krefjandi þarfir og nýjar áskoranir.

Á þessum fundi verður farið yfir virði og virkni í H3 og Flóru. Ásamt því að veita innsýn í Olap teningana, viðskiptagreind og þjónustu mannauðslausna Advania.

Boðið verður upp á léttar veitingar í föstu og fljótandi formi.

 

Fram koma:

  • Berglind Lovísa Sveinsdóttir, vörustjóri H3 segir okkur frá H3 og þeim kostum sem lausnin hefur að geyma.
    Hún mun veita innsýn í vöruframboð okkar og hvernig vörurnar vinna saman sem ein heildstæð lausn sem gefur fyrirtækjum betri yfirsýn, meiri stjórn og aukna sjálfvirkni. 
    Síðast en ekki síst kynnumst við viðskiptagreindarlausninni, eitt öflugasta viðskiptagreindartól sem er í boði í dag fyrir stjórnendur. Viðskiptagreindin gerir stjórnendum kleift að taka upplýstar ákvarðanir byggðar á rauntímagögnum, með einföldum og sjónrænum hætti.
  • Díana Björk Olsen, deildarstjóri þjónustu hjá mannauðslausnum fer yfir hvers vegna það skiptir máli að hafa þjónustuaðila sem veitir stuðning og öryggi þegar þörf er á.  Hún mun varpa ljósi á þjónustu mannauðslausna Advania þar sem boðið er upp á framúrskarandi þjónustu við launavinnslu og mannauðsmál. Með öflugri tækni, djúpri þekkingu og persónulegri þjónustu hjálpum við vinnustöðum að búa til meiri tíma fyrir mannlega þáttinn.
    Einnig verður fjallað um hvernig sérfræðingar mannauðslausna Advania geta létt undir með fyrirtækjum þegar álag eykst í launavinnslu með þjónustunni "launafulltrúi að láni".
  • Alma Dröfn Benediksdóttir, skrifstofu- og mannauðsstjóri hjá Húsheild Hyrna, mun deila með okkur þeirra reynslu af bæði þjónustunni við H3 og innleiðingunni á H3 og segja okkur frá virðinu fyrir þau við það að hafa tekið upp kerfið. 
     

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest í húsi, hlusta saman á fræðandi erindi og kynna fyrir ykkur vöruframboð okkar.

Fram koma

speaker mynd

Berglind Lovísa Sveinsdóttir

Vörustjóri hjá Advania
speaker mynd

Díana Björk Olsen

Deildarstjóri þjónustu
speaker mynd

Alma Dröfn Benediksdóttir

Skrifstofu- og mannauðsstjóri hjá Húsheild Hyrna

Skráðu þig á viðburðinn

Loading...