Company logo

Valmynd

Akureyri - Virkni og virði í Tímavídd H3

4. júní 2025

09:00-10:00

Austursíða 6, Akureyri

H3 notendum er boðið á morgunverðarfund þar sem farið verður yfir Tímavídd, allt það nýjasta í H3 og viðskiptagreindarlausnina okkar. 

Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 4. júní frá kl. 09:00 til 10:00 á starfsstöð Advania á Akureyri í Norðurtorgi, Austursíðu 6 á 3. hæð. Ath. þessum fundi verður ekki streymt.

Boðið verður upp á léttan morgunverð og kaffi.

Berglind Lovísa, vörustjóri H3 veitir innsýn í allt það nýjasta í H3 ásamt því að segja okkur frá þeim viðskiptagreindarlausnum sem eru í boði fyrir stjórnendur og launasérfræðinga. Hún sýnir okkur virði, virkni og hvernig við nýtum okkur Tímavíddina í H3. Tímavíddin gerir breytingasöguna í kerfinu mun aðgengilegri fyrir notendur en hún var áður og gerir notendum kleift að skrá breytingar fram í tímann, auk þess sem hún gerir samanburð gagna á milli tímabila auðveldari. 


Við hlökkum til að byrja daginn með þér!

Fram koma

speaker mynd

Berglind Lovísa Sveinsdóttir

Vörustjóri hjá Advania

Skráðu þig á viðburðinn

Loading...