Company logo

Valmynd

Fjárhagur í sjöunda himni – Power Platform og Dynamics 365 Finance

20. nóv. 2025

08:45-10:00

Guðrúnartún 10, Austursíða 6, Akureyri

Aðventufundur í höfuðstöðvum Advania og í beinu streymi á Akureyri. Taktu þátt í stuttum og hnitmiðuðum morgunverðarfundi þar sem ráðgjafar Advania fjalla um hvernig Power Platform getur aukið virði Dynamics 365 Finance og hvernig Advania getur aðstoðað fyrirtæki í að tryggja öruggan og skilvirkan rekstur á Dynamics 365 Finance í skýinu.

Á fundinum verður fjallað um:

  • Hvernig Power Platform vinnur með Dynamics 365 Finance til að sjálfvirknivæða, einfalda og efla rekstrarferla,
  • Hvernig Advania styður fyrirtæki með ráðgjöf, uppfærslum og rekstrarþjónustu fyrir Dynamics 365 Finance umhverfi í skýinu.
  • Hvort sem fyrirtækið þitt nýtir Dynamics 365 Finance í dag eða er að kanna möguleikana, færðu hagnýta innsýn og raunhæf dæmi um hvernig lausnir Microsoft geta aukið skilvirkni, yfirsýn og rekstraröryggi.

Gunnur Jónsdóttir, forstöðumaður Dynamics 365 – Fundarstjóri

Gunnur Jónsdóttir býður gesti velkomna á fundinn.

 

Högni Hallgrímsson, forstöðumaður Gervigreindar og Sjálfvirkni – Power Platform: Sjálfvirknivæðing og einföldun ferla

Sjáðu hvernig Power Platform getur breytt leiknum fyrir fyrirtæki sem nota Dynamics 365 Finance & Operations eða AX! Við skoðum hvernig hægt er að sjálfvirknivæða ferla, einfalda daglega vinnu og nýta gervigreind til að hraða þróun á snjöllum lausnum.

Þú færð hagnýtar hugmyndir, dæmi úr íslenskum fyrirtækjum og innsýn í það nýjasta sem Power Platform hefur upp á að bjóða. Hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða vilt taka næsta stökk í stafrænum umbótum, þá færðu skýra sýn á því hvernig þessi tækni getur skapað samkeppnisforskot.

 

 

Már Grétar Pálsson, ráðgjafi Dynamics 365

Dynamics 365 - viðskiptakerfi sem skýið elskar; "Dynamics" heimur Microsoft í skýinu er heilstætt umhverfi samþættra viðskiptalausna. Með "One Dynamics One Platform" stefnu Microsoft verður það enn þéttara - sem kallar á nýjar áskoranir við rekstur og þjónustu lausnanna. Sömuleiðis verður snert á þeim spennandi nýjungum sem eru framundan.

 

Húsið opnar kl. 08:00, dagskrá hefst kl. 08:45 og stendur til 10:00. 

 

Boðið verður upp á léttar veitingar og kaffi.

Fram koma

speaker mynd

Gunnur Jónsdóttir

forstöðumaður Dynamics 365
speaker mynd

Högni Hallgrímsson

forstöðumaður Gervigreindar og Sjálfvirkni
speaker mynd

Már Grétar Pálsson

ráðgjafi í Dynamics 365

Skráðu þig á viðburðinn

Loading...