Frá kerfi til kímni - Tímavídd, þjónustuupplifun og uppistand
15. maí 2025
15:00-17:00
Matsalur Advania, Guðrúnartún 10
Á viðburðinum verður farið yfir virði og notkun á Tímavídd í H3. Við fáum innsýn í upplifun Mosfellsbæjar á þjónustu mannauðslausna Advania og endum á uppistandi frá gríndrottningunni henni Snjólaugu Lúðvíksdóttur, sem hefur verið að koma sterk inn á uppistands senuna undanfarin ár.
- Kristján Þór Magnússon sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfis hjá Mosfellsbæ mun deila með okkur þeirra reynslu af þjónustunni hjá mannauðslausnum Advania.
- Berglind Lovísa Sveinsdóttir, vörustjóri H3 veitir innsýn í lausnina og fer yfir virði, virkni og notkun á Tímavídd í H3. Tímavíddin gerir breytingasöguna í kerfinu mun aðgengilegri fyrir notendur en hún var áður og gerir þeim kleift að skrá breytingar fram í tímann, auk þess sem hún gerir samanburð gagna á milli tímabila auðveldari.
- Til að slá botninn í frábæran viðburð og kitla hláturtaugarnar fáum við hana Snjólaugu Lúðvíksdóttur til okkar. Snjólaug hefur einstaka hæfileika til að grípa stemninguna í salnum og kalla fram hlátur viðstaddra. Eftir fræðandi erindi um Tímavídd í H3 og innsýn í þjónustuupplifunina er tilvalið enda daginn með bros á vör.
Fram koma
Berglind Lovísa Sveinsdóttir
Vörustjóri hjá AdvaniaKristján Þór Magnússon
Sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfis hjá MosfellsbæSnjólaug Lúðvíksdóttir
uppistandari