Framtíð fjármálaþjónustu – Lægri kostnaður, bætt samkeppnishæfni og betri þjónusta
25. mars 2026
08:45-10:00
Guðrúnartún 10
Sérfræðingar frá Salesforce mæta til landsins og veita okkur innsýn í Agentforce Financial Services og útskýra um leið hvernig nýta má fyrirbyggjandi svikaviðvaranir og gervigreind til að verja viðskiptavini. Við munum líka fá reynslusögu um hvernig Royal Bank of Canada stytti undirbúningstíma fyrir fundi úr 2-3 klukkustundum niður í nokkrar sekúndur og hvernig CaixaBank, sem þjónustar 20 milljónir viðskiptavina, náði 20% framleiðniaukningu. Við fáum líka innsýn frá VÍS en þau ætla að sýna okkur hvernig þau nýta Salesforce til að þjónusta sína viðskiptavini.
Fundurinn er ætlaður stjórnendum og tæknifólki sem vinnur í fjármálageiranum. Eftir fundinn ættir þú að hafa skýrari sýn á hvernig nýta má erindreka til að bæta samkeppnishæfni, lækka kostnað og styrkja þjónustu og reglufylgni fyrir fjármálaþjónustu á Íslandi.
Af hverju skiptir þetta máli fyrir íslensk fjármálafyrirtæki
Rekstrarumhverfi íslenskra fjármálafyrirtækja er flókið, hér ríkir viðvarandi verðbólga, krónan sveiflast og fyrirtækin búa við háa eiginfjárkröfur. Samkeppnin fer harðnandi með innkomu fjártæknifyrirtækja og síaukinni samþættingu ólíkra þátta fjármálaþjónustu. Á sama tíma þarf að verjast vaxandi ógnum á netöryggi og sífelldum breytingum og herðingu á innlendu og erlendu regluverki (DORA, MiCA, CSRD, EU AI act, GDPDR o.s.frv.)
Viðskiptavinir fjármálafyrirtækjanna gera kröfu um bestu mögulegu þjónustu sem skal vera aðgengleg umsvifalaust og alltaf ásamt því að vera persónusniðin og mannleg. Þessi sífellda krafa um að starfa, hraðar, betur, ódýrar og snjallar, gerir hefðbundin þjónulíkön ósjálfbær og við þurfum að hugsa hlutina á nýjan hátt.
Af hverju erindrekar (agentic AI)?
Stafrænir erindrekar geta kafað lengra og dýpra en hefðbundin sjálfvirknivæðing ferla gerir. Stafrænir erindrekar geta virkjað gögn og aðgerðir þvert á ólíkar lausnir. Þetta gerir fjármálafyrirtækjum kleift að sjálfvirknivæða enn fleiri verkefni, veita fyrirsjáanlega framúrskarandi þjónustu, greina tilraunir svika í rauntíma og tryggja reglufylgni.
Fram koma
Sabine Hoeksema
Senior Director, Industry Advisor Financial Services, SalesforceErwin Boeren
Industry Enterprise Architect Banking and Fintech, SalesforceStefán Már Melstað
Head of Salesforce & AI, VÍS