Company logo

Valmynd

Framtíðin er sjálfvirk með Power Platform og gervigreind

24. mars 2026

08:45-10:00

Austursíða 6, Akureyri

Hvernig breytum við góðum hugmyndum í raunverulegar lausnir sem skila mælanlegum árangri? Á þessum viðburði skoðum við hvernig íslensk fyrirtæki hafa nýtt sjálfvirkni, Power Platform og gervigreind til að einfalda ferla, auka skilvirkni og bæta upplifun bæði starfsfólks og viðskiptavina.

Við fáum innsýn í raunveruleg verkefni þar sem hugmyndir verða að virkum lausnum, meðal annars með lifandi sýnidæmi í Copilot Studio og reynslusögu úr íslenskum rekstri þar sem Power Platform hefur skilað betri yfirsýn og aukinni skilvirkni. 

 

Viðburðurinn er ætlaður þeim sem vilja sjá hvernig tæknin skapar raunverulegt virði í daglegum rekstri.

 

Dagskrá

Sigfús Jónasson, fundarstjóri býður gesti velkomna og fjallar stuttlega um dagskrá fundarins. 

  

Frá hugmynd til hagnýtingar 

Högni Hallgrímsson, forstöðumaður Sjálfvirkni 

Í þessum fyrirlestri skoðum við dæmi um hvernig viðskiptavinir Advania hafa nýtt nýjustu tækninýjungar, sjálfvirkni, Power Platform og gervigreind, til að breyta eigin kerfum og ferlum. Með hagnýtri innleiðingu á þessum lausnum hafa fyrirtæki sparað bæði tíma og fjármuni, aukið rekstraröryggi og bætt upplifun starfsfólks og viðskiptavina. 
 
  

Erindreki á 20 mínútum - Copilot Studio í verki 

Andri Már Helgason, vörustjóri Power Platform 

Við búum til erindreka (e. agent) frá grunni í Copilot Studio - í beinni! Við sýnum hvernig hægt er að tengja við gagnasöfn, skilgreina aðgerðir og birta lausnina í Teams. Þátttakendur fá að sjá hversu einfalt er að fara frá hugmynd yfir í virka lausn á örfáum mínútum. 
 
  

Reynslusaga úr bransanum: "Vegferð Kjarnafæði Norðlenska"  

Reynir B. Eiríksson, Verkefnastjóri, Kjarnafæði Norðlenska  

Reynir hjá Kjarnafæði Norðlenska deilir því hvernig þau nýttu Power Platform til að sjálfvirknivæða ferla, bæta gagnasýn og auka skilvirkni í rekstri - samhliða innleiðingu á Business Central. Hvað virkar best? Hvaða áskoranir komu upp? Hver er ávinningurinn í dag? 

Fram koma

speaker mynd

Sigfús Jónasson

Sölustjóri Power Platform
speaker mynd

Högni Hallgrímsson

forstöðumaður sjálfvirkni
speaker mynd

Andri Már Helgason

Vörustjóri Power Platform
speaker mynd

Reynir B. Eiríksson

Verkefnastjóri, Kjarnafæði Norðlenska

Skráðu þig á viðburðinn

Loading...