Company logo

Valmynd

10.mars 2020
11:00 - 12:00

Gagnaskil til Þjóðskjalasafns með Office 365

10. mars 2020

11:00-12:00

Online

Advania efnir til opins fræðslufundar um hvernig standa megi að rafrænum skilum á gögnum til Þjóðskjalasafns Íslands. Farið verður yfir hvernig nýta megi Office 365 sem rafrænt mála- og skjalakerfi.

Advania efnir til opins fræðslufundar um hvernig standa megi að rafrænum skilum á gögnum til Þjóðskjalasafns Íslands. Farið verður yfir hvernig nýta megi Office 365 sem rafrænt mála- og skjalakerfi. Flestar opinberar stofnanir eru að taka í notkun Office 365 umhverfið og því tilvalið að nýta tækifærið til að koma gagnavörslu í gott horf. Advania hefur reynslu af því að skila vörsluútgáfu gagna úr skjalakerfi SharePoint til Þjóðskjalasafnsins. Eftirlitskönnun Þjóðskjalasafns leiðir í ljós að skjalavörslu og skjalastjórn hjá opinberum stofnunum sé ábótavant. Þjóðskjalasafn Íslands hefur einungis fengið gögn úr 3% af rafrænum gagnakerfum ríkisins. Í skýrslu Þjóðskjalasafns kemur fram að meðferð á tölvupóstum sé sérstaklega ábótavant. Opinberum aðilum ber lagaleg skylda til að halda utan um sín gögn með ábyrgum hætti og skila gögnum til vörsluaðila. Gunnar Örn Haraldsson sérfræðingur hjá Advania segir frá reynslu fyrirtækisins og hvernig nýta megi Office 365 umhverfið til rafrænna skila á gögnum til Þjóðskjalasafns. Garðar Kristinsson og S. Andrea Ásgeirsdóttir, sérfræðingar Þjóðskjalasafns, segja frá kröfum og reglum um gagnaskil og rafræna skjalavörslu.