Gervigreindin er mætt í tækin. Komdu og hittu hana á Akureyri.
16. okt. 2026
08:30-11:00
Austursíða 6, Akureyri
Við byrjum daginn saman klukkan 8:30 yfir morgunmat, og förum svo yfir það sem raunverulega er komið í gagnið og svörum spurningum um hvað hentar þínu fyrirtæki.
Dell: gervigreind á skrifborðinu, ekki bara í skýinu
Við kynnum nýjustu Dell fartölvurnar og Dell Pro Max með GB10, litla en kraftmikla vinnustöð byggða á NVIDIA Grace Blackwell. Hún ræður við stór mállíkön á staðnum, sem þýðir eitt í praxís: gögnin fara ekki úr húsi. Fyrir fyrirtæki sem vilja nýta gervigreind en mega ekki senda viðkvæm gögn út í heim er þetta stórt skref.
Verkada: öryggiskerfi sem skilur það sem það sér
Verkada breytir öryggismyndavélum úr upptökutækjum í leitarvél. Í stað þess að skrolla klukkustundum saman í gegnum myndefni leitar þú beint að því sem þú ert að leita að. Kerfið er skýjabundið, uppfærist sjálft og heldur utan um aðgangsstýringu, myndavélar og skynjara á einum stað.
Fjarfundir sem láta þig líta vel út
Við sýnum búnað frá Yealink, Jabra, Logitech og Cisco. Myndavélar sem finna þann sem talar og ramma hann inn, hljóðnemar sem sía burt skrjáfið í pappírunum og lausnir sem skila jafn góðum fundi hvort sem helmingur hópsins situr í herberginu eða heima í eldhúsi. Gervigreindin vinnur hér í bakgrunni, hljóðlát og ósýnileg, og það er einmitt málið.
Vörustjórar Advania á staðnum
Þetta er kjörið tækifæri til að hitta vörustjóra Advania augliti til auglitis, máta lausnirnar við þinn rekstur og fá hreinskilin svör við spurningum um hvað borgar sig og hvað ekki.