Company logo

Valmynd

17.október 2023
10:00 - 10:30

Hvernig bæti ég öryggið á mínum vinnustað?

17. okt. 2023

10:00-10:30

Online

Á þessum veffundi munu Ragnar og Fanney leysa upp hnútinn sem margir stjórnendur finna í maganum þegar þeir spyrja sig: Hvernig get ég bætt öryggisúrræði fyrirtækis míns án þess að vera sérfræðingur í upplýsingatækni?

Þau mæla með því að stjórnendur: 

 

Byrji á réttum stöðum: 

Þau munu skýra hvernig hægt er að byrja með því að skilja virði og áhættur tengdar upplýsingum og kerfum fyrirtækisins, og hvernig hægt er að nýta sér til dæmis NIST Cybersecurity Framework eða ISO 27001 til að skipulag og aðferðir séu á réttum stað. 

 

Mælikvarðar og mat: 

Hvernig geta stjórnendur metið áhættur og árangur án þess að þurfa að dýfa sér of djúpt í tæknilega hliðina? Ragnar og Fanney munu kynna einfaldar spurningar og aðferðir til að fá skil á þessum þáttum. 

 

Áætlun í viðbragði: 

Þau munu ræða mikilvægi þess að hafa áætlun tilbúna fyrir óvæntu atburðina, og hvernig hægt er að skipulag og þjálfun starfsmanna getur bætt öryggisstöðu fyrirtækisins. 

 

Sérfræðiþekking og samvinna: 

Ragnar og Fanney munu skoða hvernig hægt er að byggja upp flókin öryggisverkefni með því að nýta sér sérfræðiþekkingu og samstarf við sérfræðinga, með dæmum úr reynslu þeirra með Skjöld, Modern Network og Modern Desktop lausnum. 

 

Góð ráð og hugmyndir: 

Loks munu þau gefa gagnleg ráð og dæmi um hvernig einföld öryggisráð og -tól, eins og multi-factor authentication og vernd gegn fyrirmælasvikum (e. Business Email Compromise), geta haft jákvæð áhrif á öryggisstöðu fyrirtækja. 

 

Ragnar og Fanney munu deila persónulegri reynslu sinni, dæmum og sérfræðiþekkingu til að hjálpa stjórnendum að taka næsta skref í að bæta öryggisstöðu og skapa öruggara vinnuumhverfi.