Company logo

Valmynd

02.desember 2021
09:47 - 11:00

Jólafundur mannauðslausna Advania

2. des. 2021

09:47-11:00

Online

Mannauðslausnir Advania eru í stöðugu þróunar- og umbótaferli. Á þessum fundi verður farið yfir nýjungar í lausnunum sem geta auðveldað fólki utanumhald í mannauðsmálum.

Rætt verður um jafnlaunakerfi, launagögn, starfsmannasamtöl, nýtt viðmót í Bakverði og það sem er framundan í stafrænni þróun mannauðslausna. 

Ekki missa af árlegum jólafundi.  Hann er ætlaður öllum þeim sem nýta mannauðslausnir Advania. 

 

Dagskrá:  
 

  • Guðríður Hjördís Baldursdóttir, vörustjóri hjá Advania,  
    fjallar um nýju mannauðslausnina Samtal, hvernig hún straumlínulagar ferilinn í samtölum starfsfólks og stjórnenda og hjálpar mannauðsfólki að hafa yfirsýn með hjálp sniðmáta og mælaborða.
  • Berglind Lovísa Sveinsdóttir, vörustjóri hjá Advania,  
    fjallar um nýjungar á árinu 2021, samþykktarferli launa og jafnlaunagögn.
  • Gunnar Örn Haraldsson, hópstjóri hjá Advania,  
    segir frá easyEQUALPAY sem auðveldar fyrirtækjum að innleiða jafnlaunakerfi og standast þannig lög um jafnlaunavottun.
  • Oddur Carl Thorarensen, vörustjóri hjá Advania, 
    fer yfir nýja reiknivél og nýtt viðmót fyrir reiknireglur í Bakverði.
  • Sigrún Ósk Jakobsdóttir, mannauðsstjóri Advania, 
    mun fjalla um Launagáttina sem var þróuð til að styðja við gott ferli launaákvarðana hjá Advania í samræmi við jafnlaunavottun.

 

Fundurinn fer alfarið fram á netinu og verður í beinni útsendingu frá Advania, fimmtudaginn 2.des.  

Fram koma

speaker mynd

Guðríður Hjördís Baldursdóttir

Vörustjóri hjá Advania
speaker mynd

Gunnar Örn Haraldsson

Sérfræðingur hjá Advania
speaker mynd

Berglind Lovísa Sveinsdóttir

Vörustjóri hjá Advania
speaker mynd

Oddur Carl Thorarensen

Vörustjóri hjá Advania
speaker mynd

Sigrún Ósk Jakobsdóttir

Mannauðsstjóri Advania