Kakó, kökur og Copilot á Akureyri
3. des. 2026
08:30-10:00
Austursíða 6, Akureyri
Við förum yfir aðferðarfræði Advania við ábyrga innleiðingu, deilum praktískum þjóðráðum sem Copilot-notendur geta nýtt strax og skoðum hvernig velja má hagkvæmustu leiðina að Microsoft Copilot lausnum fyrir mismunandi notendahópa. Við tengjum umræðuna við reynslu úr verkefnum hjá viðskiptavinum og leggjum áherslu á það sem virkar í raun. Tilvalin morgunstund fyrir stjórnendur og tæknifólk sem er að móta næstu skref í sinni Copilot vegferð.
Dagskrá
Ábyrg innleiðing Microsoft Copilot – Frá gagnagreiningum til valdeflingar notenda
Andri Már Helgason, ráðgjafi
Advania hefur mótað heildstæða aðferðarfræði við innleiðingu Microsoft gervigreindarlausna fyrir sína viðskiptavini. Andri Már kynnir aðferðarfræðina og speglar sig í verkefnum fyrir viðskiptavini fyrr á árinu.
Nokkur þjóðráð til að leysa úr læðingi ávinning Copilot
Nicolas Ragnar Muteau, ráðgjafi
Nico er einn reynslumesti ráðgjafi landsins þegar kemur að því að styðja fyrirtæki og stofnanir við nýtingu MS Copilot lausna. Nico mun gefa gestum innsýn í nokkur praktísk atriði sem allir notendur Copilot ættu að nýta sér.
Hvernig finnum við hagkvæmustu leiðina að nýtingu MS Copilot lausna?
Sandra Birgisdóttir, leyfisráðgjafi
Margar leiðir eru fyrir fyrirtæki og stofnanir við að nálgast Microsoft Copilot lausnir. Sandra kynnir fyrir gestum í stuttu máli hvaða leiðir séu í boði og hverju sé að huga þegar kemur að innkaupum leyfa fyrir mismunandi hópa notenda.
Fram koma
Andri Már Helgason
Vörustjóri Power PlatformNicolas Ragnar Muteau
Microsoft Copilot ráðgjafiSandra Birgisdóttir
Microsoft leyfasérfræðingur