Löng jól fyrir alla nema launasérfræðinga, eða hvað?
20. nóv. 2024
08:30-10:00
Guðrúnartún 10
Hvernig mannauðslausnir skapa meiri tíma fyrir skemmtilega jólastússið
Á fundinum var farið yfir hvernig þessi knappi tími sem launasérfræðingar hafa til útreikninga á launum í desember verði sem best nýttur með góðri nýtingu á launakerfinu án þess að það komi niður á andlegri heilsu launasérfræðinga.
María Kristín Jónsdóttir hópstjóri launavinnslu hjá Festi deildi með okkur sinni reynslu af því að nýta greiningar, teninga og BI skýrslur og miðla því til stjórnendateyma.
Berglind Lovísa Sveinsdóttir, vörustjóri H3 veitti innsýn inn í bestu leiðir við launavinnslu og hvað skiptir máli að hafa í huga fyrir komandi álag varðandi launavinnslur í desember. Berglind mun fara yfir virði við það að nýta kerfið með sem bestu hætti svo það sé hægt að greiða rétt laun á réttum tíma og skila upplýsingum til stjórnenda.
Fundinum lauk svo á fræðsluerindinu Hátíðar(v)andi? frá Hilju Guðmundsdóttur sem var ætlað að vekja stjórnendur og starfsfólk til umhugsunar um þá margvíslegu álagsþætti sem fylgja hátíðunum, hvernig vinnustaðir geta brugðist við slíkum aðstæðum og hvaða skref bæði stjórnendur og starfsfólk geta tekið til að styðja við geðheilbrigði á vinnustað yfir hátíðarnar.
Fram koma
Berglind Lovísa Sveinsdóttir
Vörustjóri hjá AdvaniaMaría Kristín Jónsdóttir
Hópstjóri launavinnslu hjá FestiHilja Guðmundsdóttir
Ráðgjafi hjá Mental ráðgjöf