Morgunverðafundur með Verkada: Ný kynslóð aðgangsstýringar – Ein lausn, full yfirsýn
17. feb. 2026
09:00-11:00
Guðrúnartún 10, Austursíða 6, Akureyri
Komdu á morgunverðarfund þar sem Advania og Verkada kynna hvernig nútímalegar öryggislausnir geta sameinað aðgangsstýringar, myndavélakerfi, gesta móttökukerfi umhverfiseftirlit og aðrar lausnir allt í eitt einfalt, öflugt og notendavænt viðmót.
Á fundinum förum við yfir hvernig Verkada hefur umbreytt rekstri fjölmargra fyrirtækja með því að samræma ólík kerfi í einni heildstæðri lausn sem auðvelt er að stýra – hvar og hvenær sem er.
🔐 Aðgangsstýring (Access Control) – í lykilhlutverki
Sérstök áhersla verður lögð á Verkada Access Control, sem gerir fyrirtækjum kleift að hafa skýra og nákvæma yfirsýn yfir alla innganga, réttindi og rauntímaupplýsingar um hreyfingar. Verkada einfaldar rekstur með því að:
- sameina aðgangskort, hurðastýringar og notendastjórnun í einu kerfi,
- tengja aðgangsstýringar beint við myndavélaumhverfið,
- gera fyrirtækjum kleift að bregðast hraðar og betur við öryggisatvikum.
- geta opnað hurðar með andlitsgreiningu.
- senda tímabundna lykla á gesti og verktaka.
🧩 Sterk samþætting við Microsoft Entra (AD)
Einn mikilvægasti ávinningurinn er hvernig Verkada tengist Microsoft Entra (Active Directory). Þessi samþætting tryggir að:
- réttindi eru stýrð í gegnum AD-grúppur, sem gerir ferlana einfaldari og öruggari,
- notendur missa aðgang samstundis þegar þeim er eytt eða lokað í AD,
- mannleg mistök fækka verulega þar sem öll notendastýring fer fram á einum stað,
- fyrirtæki fá fulla yfirsýn yfir aðgangsstýringar án þess að þurfa að viðhalda mörgum ólíkum kerfum.
Þetta sparar tíma, eykur öryggi og léttir verulega á rekstri upplýsingatæknideilda.
🧑💼 Verkada Guest – einfaldari móttaka og betri upplifun
Við kynnum einnig Verkada Guest, skráningar- og móttökukerfi sem bætir bæði öryggi og upplifun gesta. Lausnin býður meðal annars upp á:
- sjálfvirka innritun með QRkóða eða andlitsgreiningu á móttökuskjá,
- sjálfvirkar tilkynningar til starfsmanna þegar gestur mætir,
- samþættingu við Access Control og myndavélar,
- þægilegan rekstraryfirlit yfir alla gestakomur.
Þessi morgunverðarfundur er kjörinn fyrir:
- fyrirtæki sem vilja einfalda aðgangsstýringar og auka öryggi,
- rekstraraðila sem vilja betri yfirsýn í einu viðmóti,
- ITteymi sem vilja draga úr flækjustigi og sjálfvirknivæða ferla,
- öryggisfulltrúa sem vilja færa sig úr mörgum kerfum yfir í eina samþætta lausn.
Sjáðu búnaðinn og prófaðu lausnina á staðnum. Hittumst, fáum okkur gott að borða og kynnumst lausn sem gerir daglegt líf einfaldara, skilvirkara og öruggara.
Fram koma
Nic Inchbald
Director, Verkada Northern EuropeDan Thatcher
Account Executive, Iceland, VerkadaDenis Krajinic
Solutions Engineer, Northern Europe, VerkadaSigurgeir Þorbjarnarson
Vörustjóri funda- og samskiptalausna