Öryggisátak Advania í október: ZyberSafe - dulkóðun gagna í rauntíma
1. okt. 2020
11:00-12:00
Online
Eftir að gögn yfirgefa routerinn okkar og áður en þau komast á leiðarenda, fara þau í gegnum allskyns búnað sem við vitum lítið um. Við vitum ekki hvort einhver sé búin að koma sér fyrir á honum til að skoða ódulkóðuð gögn sem ferðast á milli staða? Nýverið kom upp atvik í Danmörku þar sem að erlendum stjórnvöldum var veitt aðgengi að línum til að hlera samskipti.
Hverjar geta verið afleiðingar þess og hvernig getum við komið í veg fyrir að hægt sé að skoða gögnin okkar meðan þau ferðast á milli staða?
ZyberSafe er danskt félag sem sérhæfir sig í dulkóðun gagna í rauntíma. Lausnir þeirra eru einfaldar í uppsetningu og þarfnast ekki flókinnar aðlögunar eða inngrips í nethögun fyrirtækja.
Viðburðurinn er liður í alheimsátaki um aukna öryggisvitund sem stóð yfir í október 2020.
10:00 10:15 – Af hverju eigum við að dulkóða gögnin okkar og hvað hefur sagan sýnt okkur um gagnaöryggi? Nýleg dæmi skoðuð.
10:15-10:45 – Tæknileg yfirferð á lausnum ZyberSafe og sýnidæmi um notkun.
Fram koma:
Bjarki Traustason, vörustjóri hugbúnaðarlausna Advania
Christian Jul Jensen, CEO ZyberSafe
Erik Bidstrup, CTO ZyberSafe
Fram koma
Bjarki Traustason
Ráðgjafi í öryggisteymi Advania