Company logo

Valmynd

Power Platform í raunheimum: Öpp, sjálfvirkni og agentar

4. nóv. 2026

08:45-10:00

Guðrúnartún 10, Austursíða 6, Akureyri

Gervigreind er að færast frá því að svara spurningum yfir í að framkvæma verkefni. Er þitt fyrirtæki tilbúið í næsta skref?

Á morgunverðarfundinum skoðum við hvernig Power Platform er að breyta því hvernig fyrirtæki vinna, þjónusta viðskiptavini og skapa samkeppnisforskot. Farið verður yfir hvernig fyrirtæki geta farið frá fyrstu Copilot-skrefunum yfir í sjálfvirka ferla og agenta sem taka að sér verkefni, spara tíma og auka afköst. Við heyrum sömuleiðis af vegferð RARIK og sýnum raunveruleg dæmi um hvernig íslensk fyrirtæki og stofnanir eru þegar farin að ná mælanlegum árangri með Power Platform. 

Húsið opnar kl. 08:30 og við munum bjóða upp á kaffi og léttar veitingar ☕🥐

Fyrirlestrar hefjast kl. 08:45.

Dagskrá 

  

Næsta bylgja Power Platform: Öpp, sjálfvirkni og agentar 

Power Platform er að þróast hratt frá low-code yfir í öflugan vettvang fyrir öpp, sjálfvirkni og AI-agenta. Í þessu erindi skoðum við hvert platformið stefnir og hvernig fyrirtæki geta farið frá því að prófa AI yfir í að skapa raunverulegt virði. 

Högni Hallgrímsson, forstöðumaður sjálfvirkni og gervigreindar hjá Advania.

 

Frá hugmynd í framkvæmd hjá RARIK 

Í þessu erindi fáum við innsýn í vegferð RARIK, vinnuna með erindreka og hvernig tækifæri eru færð nær framkvæmd. 

Björn Guðmundsson, öryggisstjóri hjá RARIK  

 

Power Platform í raunheimum 

Í þessu erindi skoðum raunveruleg dæmi um hvernig íslensk fyrirtæki og stofnanir nýta Power Platform til að einfalda ferla og skapa virði. 

Viktor Steinarsson, deildarstjóri sjálfvirkni og gervigreindar hjá Advania.

Fram koma

speaker mynd

Högni Hallgrímsson

forstöðumaður sjálfvirkni og gervigreindar hjá Advania
speaker mynd

Viktor Steinarsson

deildarstjóri sjálfvirkni og gervigreindar hjá Advania
speaker mynd

Björn Guðmundsson

öryggisstjóri hjá RARIK

Skráðu þig á viðburðinn

Loading...