Sjálfvirkni, gervigreind og sveitarfélög
2. nóv. 2026
09:00-10:00
Guðrúnartún 10, Online
Á fundinum munu koma fram sérfræðingar frá Evolv, Advania og Raffle.ai.
- Húsið opnar kl. 08:30 með kaffi og léttum morgunverði ☕🥐
- Fundurinn hefst kl. 09:00 og stendur yfir til 10:00.
Evolv, sem nú er hluti af Advania, munu sýna frá spennandi verkefnum og fjalla um hvernig sveitarfélög geta nýtt gervigreind og sjálfvirknivæðingu til að draga úr handavinnu á hinum ýmsu sviðum stjórnsýslunnar.
Við munum einnig segja frá nýrri lausn; Advania ALT, sem opnar á möguleika íslenskra fyrirtækja og stofnana að nýta gervigreind til að vinna með gögnin sín innan íslenskrar lögsögu.
Raffle.ai er danskt tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í gervigreindardrifinni leit og erindrekum. Með sameiningu öflugra leitarvéla og gervigreindar verða stafrænar upplýsingar aðgengilegri og sýnilegri á vefnum.
Á fundinum skoðum við hvernig sveitarfélögin geta nýtt þessar lausnir til að auðvelda upplýsingaleit íbúa, stuðla að sjálfsafgreiðslu og draga úr endurteknum fyrirspurnum til starfsfólks.
Raffle hefur umtalsverða reynslu af því að vinna með dönskum sveitarfélögum og munu deila dæmum um verkefni þar sem gervigreind hefur verið notuð til að efla þjónustu við íbúa.
Áhersla verður á hagnýtar lausnir, reynslu af innleiðingu og þau tækifæri sem eru fólgin í hagnýtingu gervigreindar og sjálfvirknivæðingar fyrir íslensk sveitarfélög.
Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Advania, Guðrúnartúni 10 en einnig verður Teams fundarboð sent á þá gesti sem eru á landsbyggðinni.
Fram koma
Viðar Pétur Styrkársson
Viðskiptastjóri Advania ALTEva Rut Bernhöft Reynisdóttir
Automation Developer at Evolv by AdvaniaClaus T. Hansen
CEO at Raffle