18.janúar 2022
11:00 - 12:00
Viðskiptakerfi framtíðarinnar og Power Platform
18. jan. 2022
11:00-12:00
Online
Fjallað verður um þau tækifæri sem felast í Power Platforminu frá Microsoft í samhengi við Business Central og hvernig nýta má þessi tól til að sjálfvirknivæða ferla. Þannig má ná fram hagræði í rekstri og betri upplifun viðskiptavina.
Fundurinn er ætlaður öllum þeim sem vilja nýta viðskiptakerfi sín sem best.
Dagskrá:
- Jóhanna Kolbjörg Sigurþórsdóttir, ráðgjafi hjá viðskiptalausnum Advania, stýrir fundinum.
- Andri Már Helgason, vörustjóri Business Central, segir frá því hvernig Advania hefur nýtt Power Platformið til að sjálfvirknivæða uppfærslur á nokkur hundruð viðskiptavinum úr TOK í Business Central. Sjálfvirkniferillinn snertir á öllu frá samskiptum við viðskiptavini, utanumhaldi og uppsetningu samninga ásamt eftirfylgni eftir uppfærslu.
- Þeir Andri Már og Högni Hallgrímsson, forstöðumaður Business Central þróunar og SaaS, fara svo yfir nýjustu tækifærin með skýjavæðingu viðskiptakerfa og hvernig Microsoft skýjaumhverfið styður við hraðar, snjallar og ódýrar lausnir á stafrænum viðfangsefnum fyrirtækja.
- Sigvaldi Óskar Jónsson og Magnea Rós Svansdóttir segja frá því hvernig Eimskip notar Power Platformið við að einfalda ferla fyrirtækisins á hraðan og ódýran hátt og hvernig notendaupplifun þeirra er.
Fram koma
Jóhanna Kolbjörg Sigurþórsdóttir
ráðgjafi hjá viðskiptalausnum AdvaniaAndri Már Helgason
vörustjóri Business CentralHögni Hallgrímsson
forstöðumaður viðskiptalausna hjá AdvaniaSigvaldi Óskar Jónsson
vörustjóri hjá EimskipMagnea Rós Svansdóttir
vörustjóri hjá Eimskip